Fangelsi
Ef spilari brýtur af sér á servernum má búast við fangelsisdómi eða banni. Við væg brot geta spilarar lent i því að fá sektir. Fangelsisdómur getur verið allt frá 10min upp í 2 vikur, sem þarf að afplána inn á servernum. Allir spilarar sem brjóta af sér geta búist við refsingu, hvort sem það er byrjandi eða lögregluþjónn.
Á Minetropolis má finna 3 fangelsi.
Á Minetropolis má finna 3 fangelsi.
Blackgate
Vægustu afbrotin lenda inn á Blackgate. Þar er hægt að fylgjast með tímanum sem þarf að bíða, kíkja á aðra fanga og ef þú ert klár, gæti verið hægt að brjótast út.
|
Lögreglustöðin
Hér dúsa spilarar fyrir meðalgróf brot og eru fastir einir í gæsluvarðhaldi. Þar eru þeir einir í litlum klefa og hafa enga leið út.
|
The Void
Hér fara inn spilarar með grófustu brotin. Þar eru spilarar fastir á litlum reit í miklu tómi og geta aðeins beðið eftir að losna. Ekki er hægt að hafa samband við aðra spilara á servernum en hugsanlegt er að öðlast áheyrn ef spilarinn kastar sér út í tómið.
|
Bönn
Ef spilari er sífelldur afbrotamaður og með endalaust vesen og leiðindi getur sá spilari átt von á langtíma eða endanlegu banni af servernum.